Um opinn hugbúnað

Markmið þessa vefs er að vinna að kynningu og aukinni útbreiðslu á opnum hugbúnaði í íslensku atvinnulífi og stjórnsýslu.

Framboð á ókeypis hugbúnaði hefur aukist mjög á undanförnum árum og notkun hans fer mjög vaxandi í heiminum.

Ísland er meðal tölvuvæddustu þjóða heims og íslensk fyrirtæki og hið opinbera kaupa mikið af dýrum hugbúnaði. Stærsti hluti þessa hugbúnaðar er erlendur og er greitt fyrir hann í gjaldeyri. Það er hægt að draga verulega úr þessum útgjöldum með því að velja opinn hugbúnað umfram séreignarhugbúnað þegar þess er kostur. Gjaldeyrissparnaður af slíku átaki gæti numið hátt í einn milljarð króna á ári. Á nokkrum árum verður þetta mjög há upphæð.

En sparnaður af svona stærðargráðu mun ekki nást átaks. Það þarf að móta stefnu, hefja þjóðarátak og leggja í talsverða vinnu. Íslenskir tölvunotendur þurfa að vera tilbúnir til að læra á nýjan hugbúnað. Allir þurf að leggjast á eitt.

Kreppa er góður tími til að hefja svona átak, enda skapar það fjölmörg störf og sparar dýrmætann gjaldeyrir.

Þar að auki leiðir átakið til þess að verðmæt þekking verður til hérlendis sem mun auka samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs til frambúðar.